Blogg

1.3.2010

Hálffimmtugur

Jæja, kallinn orðinn hálffimmtugur. Þetta er aldurinn sem bílatryggingarnar lækka allverulega hérna í Bandaríkjunum. 

Gærdagurinn var frekar góður. Dagurinn byrjaði á smá vinnu niðri í háskóla og fund með öðrum prófessornum, en hann er að fara til Japans í dag til að kynna verkefnið okkar á jarðskjálftaráðstefnu.

Dreif mig svo heim til að elda Heiðimerkurkryddaða lambalærið sem ég kom með frá Íslandi. Ég ákvað að fagna komu minni í þennan harða og samkeppnisfulla heim með alvöru íslenskri matarhefð

.......- með góðri hjálp símleiðis frá ömmu og mömmu :-)

Við Colleen buðum góðum vini mínum Shawn, úr doktorsprógraminu, og kærustunni hans Ariel í mat. 

Ég er ekki frá því að ég hafi massað þetta. Brúnaðar kartöflur er eitthvað sem engin af þeim kannaðist við.


...en aldrei of gamall til að fá súkkulaðiköku með kertum til að blása á...

Ég stefni á að testa á fimmtudaginn, svo ég mun reyna uppfæra um leið og niðurstöður fást.

Þangað til næst.

Skrifað 1.3.2010 kl. 23:03 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.2.2010

Punktar

Við erum á góðri leið að koma seinni súlunni fyrir og stefnum á að prófa hana í næstu viku. Ég er ekkert smá lítið spenntur. I will keep you all posted.

Yfir í Safeway...

Fór í Safeway til að kaupa í matinn. Labbaði þessi maður í áttina til mín. 

Hugsaði: "Andskotinn, þennan mann kannast ég við!....á ég á ég"

og sagði upphátt þegar hann labbaði fram hjá mér: "Ragnar"

Þá var mér svarað á góðri íslensku og undrandi - enda átti ekki von á þessu: "já"

Þessi kappi er kunnugur okkur Íslendingum í sjónvarpi - sérstaklega eftir jarðskjálfta.

Já, þetta var nefnilega Ragnar skjálfti.  Við ræddum málin og hann var sáttur þegar ég sagði honum að ég væri að stúdera burðar- og jarðskjálftaverkfræði. Hann var að heimsækja son sinn sem ég þekki ágætlega hérna - sem ég hitti reyndar seinna inn í búðinni. Ég vissi að hann væri Ragnarsson, en ekki sonur aðal skjálftafræðings landsins.

Já, þetta er nú ekki stór heimur :-)

Yfir í Þorrablótið...

Mér heyrist að það sé nett stemning fyrir því meðal okkar hérna. Að þessu sinni verður það haldið í Swedish Club hérna í Seattle. Kom inn "flæer" með nánari upplýsingum um þetta. Meira lagt í þetta en í fyrra, íslenskir söngvarar og enginn annar en Bjarni Tryggvason, geimfari, sérstakur ræðumaður kvöldsins.

Ekki laust við að manni hlakki til sviðasultunnar, kjammans og súrsuðu hrútspunganna.

Einmitt, einmitt.

Yfir í Baby Shower...

Það er að fjölga í fjölskyldu Colleen. Þannig hún var fengin/kosin til að sjá um þetta partý-sem haldið var í gær. Í stuttu máli er þetta partý sem gengur út á að gefa væntanlegri móður gjafir á barnið, og aðeins kvenfólk mætir. Er þetta ekki siður sem tíðkast eingöngu í Ameríku???

Ég held þetta sé bara ein önnur afsökunin fyrir konur að borða heita rétti.

þangað til næst...

Skrifað 22.2.2010 kl. 16:42 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.2.2010

Success

Stórum áfanga var náð í dag. Þetta gekk allt eins og í sögu og samkvæmt reikningum. Súlan myndaði lið við yfirborð fótsins, eins og ætlast er til við hönnun brúa. Nú er að snúa sér að seinni súlunni, sem byggir á sömu hugmynd.

                                                       Stoltur rannsóknarmaður

http://dailyuw.com/2010/2/19/breaking-tradition/

Sæl að sinni.

Skrifað 17.2.2010 kl. 8:44 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.2.2010

Stóri dagurinn!

Stóri dagurinn er á þriðjudaginn og er allt tilbúið - og nú er bara að bíða. Test hópurinn er ákveðinn og við eigum von á góðum gestum. Þetta er búið að vera 9 mánaða meðganga og er fyrsta tenging sinnar tegundar prófuð.

Specimen A

Á myndinni fyrir ofan sést hvernig búnaðurinn situr á súlunni til að líkja eftir eiginþunga brúarinnar og í bakgrunninum sést tækið (veit ekki hvað er íslenska orðið yfir actuator) sem ýtir lárétt á súluna til að herma jarðskjálfta. Isn't she beautiful??? :-)

Smá fiðringur í manni hérna!

Vikan sem slík var mjög góð, þó við unnum eins og brjálæðingar. Nokkur af okkur eitt kvöldið kíktum á tónleika, sem voru ekki langt frá í School of Music og um daginn var smá hittingur út af  nemandasambandi framhaldsnema.

Í gær elduðum við Colleen íslenskt hangikjöt og smakkaðist það mjög vel. Þetta er nú ekki erfitt...sjóða hangikjötið og rusla saman uppstúf. Colleen gerði uppstúf en það bara smakkaðasti ekki eins og hvernig mamma og amma gera þetta;-) Þetta var bara one shot opportunity svo ég gramsaði á internetinu og fann uppskriftina. Það sem vantaði var smá dash af sykri! Það lá við maður fékk heimþrá.

Jæja gott fólk, ég læt ykkur vita hvernig tilraunin fer.

Þangað til næst...

Skrifað 14.2.2010 kl. 8:52 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

8.2.2010

Ólympíuleikar

Það er allt að verða vitlaust hérna í Seattle út af Ólympíuleikunum, sem verða settir í næstu viku. Ég á erfitt með að greina hvor borgin er að halda leikana, Vancouver eða Seattle. Þetta er skiljanlegt því margir sem koma á leikana fljúga til Seattle og þaðan upp eftir, og þar af leiðandi mikill túrismi. Auðvitað er líka eitthvað um Washingtonians sem keppa fyrir hönd Bandaríkjanna.


Vinir mínir voru eitthvað að forvitnast á netinu um hvað væru margir Íslendingar að keppa og trúðu ekki það væru "bara fjórir".  Þetta land héti nú Iceland og þar af leiðandi hlyti það vera ráðandi í vetraríþróttum.

Yfir í annað.

Það er alveg greinilegt að ég er á leiðinni heim í næsta mánuði því amazon sendingarnar eru að detta inn um dyrnar hjá mér. Það virðist gleymast að haka við kassann sem segir að viðtakandi vilji ekki bæklinga senda í tíma og ótíma. Ég er að drukkna í blöðum.

Í dag (rétt eftir miðnætti þegar þetta er skrifað) er Superbowl eða ofurskálinn eins og ég vill kalla það. Það ætlar enginn að missa af þessu nema ég...ég verð í labbinu að sinna barninu mínu. Sumir nálgast þessa leika með öðrum hætti. Patricia, sem ég deili með skrifstofu, sagði mér hún ætlar í partý en þetta er ekki hefðbundið súperbowl party. Það verður bara kveikt á sjónvarpinu þegar auglýsingarnar eru. Málið er að auglýsingareiturinn í miðri keppni er dýr, enda öll þjóðin að horfa á, og það er keppst um að hafa þær sem glæsilegastar og sem fyndnastar.

Tjekkið þennan link: http://www.youtube.com/watch?v=8PcNkPBFF_o
Góða nótt.

Skrifað 8.2.2010 kl. 0:44 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.2.2010

Test og fleira

Þessa dagana hefur maður verið að reyna undirbúa fyrstu tilraunina. Þetta hefur gengið brösulega, svo ekki sé meira sagt. Þetta er fyrsti sökkulfóturinn sem getur rokkað ef álagið er of mikið í tækinu, sum sé mörgu að hyggja. 

Ekki það að ég sé að spila Blame Game hérna...

Þannig, þetta gengur hægar en við áttum von á og settur dagur er núna næsta þriðjudag. Ég hef gott fólk með mér í labbinu og það má segja liðið sé mjög alþjóðlegt: Bandaríkjamaður, Breti, Íslendingur, Ítali og Víetnami.

Mér finnst þetta svo einstakt og er þakklátur fyrir tækifærið að fá að búa í svona fjölmenningarsamfélagi, sem Bandaríkin eru. Maður lærir mikið.

Af öðru er helst að frétta að Íslendingafélagið hérna heldur Þorrablót í lok mánaðarins. Það kom inn um lúguna tilkynning um það. Greinilegt að ég á að endurtaka ásadansinn og að syngja íslensku lögin með öðrum sem geta sungið á íslensku.

Lærði dýrmæta reynslu í fyrra: Dansa ekki við stelpu sem kann að dansa...sprinklerinn og kasta teningingum koma þér ekki langt.

Annars, keypti ég miða á fermingarfylleríið um páskana og kemur kappinn eldsnemma heim 28. mars og tilbúinn í fyrstu ferminguna. 

Gott fólk, þangað til næst.

Skrifað 2.2.2010 kl. 15:09 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.1.2010

Nýju skórnir

Uppgötvun vikunnar er að nýju skórnir þola illa rigninguna í Seattle. Ætli maður þurfi ekki bara að kaupa stígvél...maður gekk ekki í neinu öðru þegar maður var krakki :-)

Kvenfólk hérna, ólíkt kynsystrum sínum á Íslandi, spáir ekki í tískunni þegar það rignir og tekur fram svörtu stígvélin.

Ánægja vikunnar er klárlega sigur okkar á Dönum. Það var frekar ljúft að landa góðum sigri (hvað þá á erkifjendunum) eftir vonbrigði síðustu tveggja leikja á undan. Það var bara grátlegt að sjá þá missa sigurinn úr höndum sér. 

Eyðilagði daganna fyrir mér.

Ameríkanarnir hafa verið svoldið forvitnir um handboltann. Þeir héldu að vísu að þetta væri annars konar íþrótt sem mér skillst að sé svipuð skvassi, en þú notar hendurnar sem spaða. Mér hefur tekist að rífa þá með svo stuðningsmenn Íslands í UW eru fleiri. Ég brosti bara út að eyrum í deildargrillinu í gær (framhaldsnemendur sem eru að stunda rannsóknir og prófessorarnir).

Það gengur vel að undirbúa tilraunina og settur dagur er 2. febrúar. Verðum sennilega tilbúnir fyrr en báðir prófessorarnir mínir eru í burtu og þeir vilja vera viðstaddir. Annar þeirra, Marc, er að fara til Haítí til að vinna. Það er nefnilega margt sem við getum lært eftir jarðskjálfta.

Jæja, best að halda áfram að taka til...

Þangað til næst.

Skrifað 24.1.2010 kl. 16:50 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.1.2010

Vikan

Þá er fyrsta heila vikan að baki og maður búinn að aðlagast tímamismuninum.

Síðustu dagar hafa verið frekar vætusamir svo ég hef notað regnhlífina mikið, en samkvæmt innfæddum Seattle-búum er þetta týpískur janúar...og reyndar fram í mars. Í fyrra var veturinn frekar þurr.

Anyhow, mér fannst þetta nokkuð gott...

Hurðin að skrifstofunni minni skelltist fast á fimmtudag (þann dag rigndi mikið). Ég athugaði málið og sá þennan miða hjá skrifborði Jane (hún er doktorsnemi) og var þessi miði til nemenda hennar, í námskeiði sem hún kennir. Á þessu blaði kom fram að hún gæti ekki tekið á móti nemendum síðdegis. Svo virðist sem einn nemandinn hafi ekki tekið þessu vel og skrifaði sín eigin skilaboð!

"I walked here in the rain. Thanks!"

Nú er EM í handbolta að hefjast og ekki frá því það sé kominn spenningur í kappann. Verst að leikirnir eru svo seint síðdegis að ég er í skólanum þegar þeir eru. Ég get hlustað á leikina en það er bara ekkert eins!

Þetta mót er talsvert skemmtilegra en HM því hérna eru öll liðin góð. Eitthvað segir mér að Þjóðverjar nái alla leið í úrslit og erfitt að segja til um andstæðinginn-mér finnst það vera frekar opið. Miðað við árangur Íslenska landsliðsins, eða "strákanna okkar", í leikjum undanfarna daga (sem voru reyndar æfingaleikir), þá getum við verið hæfilega bjartsýn á gott gengi.

Hef þetta ekki lengra að sinni.

Skrifað 17.1.2010 kl. 0:26 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.1.2010

Af þessu daglega.

Maður er búinn að vera hálfslappur eftir að maður kom til baka, og fyrst í dag sem maður er eins og maður á að vera. Í dag tók maður göngutúr í kringum Greenlake og allt krökkt af fólki, eins og venjulega.  Þegar maður er búinn að vera á Íslandi þar sem hitastigið var á bilinu -10°C til -15°C, þá finnst manni að það sé komið vor í Washington. Hér er hitastigið um 7-8 gráðurnar og enn líf í gróðrinum í kringum mann.

Af heimilinu er helst í fréttum, í dag tók ég mig til og ætlaði að gera við takkann sem sturtar...Anyhow, lokið datt niður og það kom sprunga á kassann.

...klósettið andaðist.

Skrapp í Home Depot (Húsasmiðju BNA) til að kaupa nýtt og reyndi hafa það eins norður-evrópskt og hægt var. Eina skilyrðið frá Colleen er að það væri hvítt. Það gekk vel að skipta um þetta.

Það eru til tvær týpur af mönnum: Þeir sem skoða leiðbeiningar áður en þeir framkvæma og þeir sem gera það ekki, en enda svo á að gera það.

Ég tilheyri seinni.

Akademíska lífinu fyrir þessa viku liggur fyrir að undirbúa fyrstu súluna fyrir prófun. Það mun taka smá tíma þar sem ég hef ekki gert þetta áður. Annað sem þarf að gera, er að vinna í greininni sem ég er meðhöfundur af. Hún fer á ráðstefnu í jarðskjálftaverkfræði, í Japan. Marc mun síðan fylgja henni eftir og kynna hana fyrir hönd hópsins.

Þangað til næst.

Skrifað 11.1.2010 kl. 5:15 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.1.2010

Óheppni

er þegar þú kastar húslyklunum þínum inn í bílinn, þannig þeir detta niður í gegnum handbremsuraufina...

...og þú þarf að rífa frá til að ná þeim aftur.

Skrifað 10.1.2010 kl. 15:19 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.1.2010

You´re late!

Jólin kláruðust í gær, síðasti Ólasveinninn fór frá byggðum.

Ferðin til baka gekk bara mjög vel. Mætti þremur klukkustundum fyrir brottför, eins og mælt er með fyrir flug til Bandaríkjanna. Það veitti ekki af, þar sem leitað var almennilega á farþegum. Í byrjun, þegar þú kemur inn í Leifstöð, er leit light en þegar þú ferð í gegnum vegabréfaskoðun á vellinum, þá er allt tekið upp og skoðað.

Ég var ekki ánægður með netið í Leifstöð. Maður er að borga fyrir net sem virkaði ekki. Aðrir voru í sömu vandræðum. Hvað var til ráða? Nú að fara bara versla. Meðal þess sem ég verslaði silica mud mask frá Bláa Lónsbúðinni. Var frekar ánægður með þetta. Nú er spurningin hverjum ég á að gefa þetta.

Lenti á spjalli við prófessor frá Copenhagen Business School um ástandið á Íslandi. Hann tilheyrir ekki þeim hópi Dana sem er einfaldlega illa við Íslendinga. Við vorum sammála að þetta muni reddast.

Flugið var gott en langt, sjö og hálfur tími. Þegar á miðja leið var komið bankaði flugfreyja í öxlina á mér og rétti mér rauðvínsflösku-"Þetta er í boði Ernu og Steinunnar". Daginn áður höfðu Erna og Steinunn frænka hennar spurt mig hvort ég vildi vín á leiðinni til baka, ég hélt nú það...án þess að ég héldi það væri eitthver alvara bakvið það.  Það smakkaðist vel.

Þessi mynd er tekin þegar vélin var nýbúin að klifra.

Hérna vorum við að fara yfir Cascade fjallagarðinn. Hann gengur frá Bresku Columbia niður til Norður Kaliforníu. Seattle er hinum meginn við fjallgarðinn.

Fyrsta sem landamæravörðurinn sagði við mig þegar ég sýndi honum pappírana mína: "You´re late! School started two days ago!" Það gekk vel að koma kjötinu í gegn, nenntu ekki einu sinni að skoða það þegar þeir heyrðu það væri frá Íslandi.

Prófessorshjónin í húsinu við hliðin á mér buðu mér í kvöldmat og vildu heyra frá ferðinni til Íslands. Næst var að spjalla við Colleen og hún sagði mér að það hafði verið rólegt á 70th street.

Núna tekur við hversdagsleikinn.

Þangað til næst!

Skrifað 7.1.2010 kl. 1:52 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.1.2010

Seattle á morgun!

Jæja, einfalt...fríið er búið. Aldrei gert eins mikið í einu jólafríi og núna. 

Kallinn er endurnærður og tilbúinn í komandi átök, og venjast 8 tíma mismuninum.  Janúarmánuður mun allur fara í tilraunir, þar sem við munum herma jarðskjálftaáraun á súlurnar. 

Eftir að John fór hafa síðustu dagar verið útréttingar, heimsóknir og almennt sprell. Kappinn tók frumraun sína, í gærkvöldi, á sushi (meina with a purpose) á staðnum fyrir ofan Iðu með félögunum, og enduðum kvöldið í heita pottinum í Laugardalnum.  Þetta var frekar nett, það er svona Dim sum tilfinning í þessu...margir smáir réttir. Það er eitthvað sem ég hef stundað í Seattle.  Ætla að kíkja betur á þessa sushi staði þarna úti, í International District.

Nú er bara fara klára pakka niður og klára á morgun að kaupa fyrir íslenska kvöldmatinn sem ég ætla elda úti. Sýna Ameríkönunum að það er betra lambakjöt til en þetta nýsjálenska!...sem er reyndar mjög gott.

Sjáumst næst í Seattle.





Skrifað 6.1.2010 kl. 15:00 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.1.2010

Nýtt ár

...þýða ný áramótaheiti.

Eitt af þeim er klárlega að taka ökuprófið í Bandaríkjunum. Það er frekar vafasamt að treina það íslenska mikið meira.

Það þarf ekki Völvuna til að spá fyrir um að það verði mikið að gera á nýja árinu. Rannsókninni miðar vel og allar líkur á að hafist verði handa við að byggja brúnna "mína"  yfir Interstate 5, í lok ársins.

Í pípunum fyrir 2010 liggur fyrir að ég er orðinn gamall maður. Kappinn verður 25 ára. Það var ekkert verið að grínast með að eftir að ná tvítugsaldrinum þá fer tíminn að líða "hratt". 

Annars, hef ég átt afskaplega góð jól heima á Íslandi. Notið þess til hins ítrasta að vera með fjölskyldu og vinum. Það var ár síðan ég var síðast á landinu og hef verið áhorfandi úr fjarlægð. Það er ætlunin að láta ekki líða svona langt milli heimsókna á nýja árinu.

Yfir nýárið fékk ég vin minn John frá Seattle í heimsókn. Þetta voru nú bara þrír dagar sem hann var hérna, en það var gert margt. Fyrsta kvöldið fór hann með mér á Julefrokost með góðum hóp MR-inga og betri helmingi þeirra. Þar meðal annars smakkaði hann hval í fyrsta skipti og fannst hann góður, svo góður að hann var orðinn fylgjandi hvalveiðum eftir kvöldið.

Við (ég, Bessi, og pabbi) tókum hringinn með honum en byrjuðum á að skoða Hellisheiðarvirkjun og Kerið.

Á myndinni fyrir ofan sést hvað gerðist í Kerinu í denn.

Fórum á Geysi og Strokkur rétt hóstaði fyrir okkur. Hann var öflugari síðast þegar ég var þarna, en það var um sumar. Við borðuðum svo góðan mat á Hótel Geysi.

Þaðan var rúllað að Gullfossi. Hann er flottur í kuldagallanum.

Við rúlluðum svo til Laugarvatns og fórum Lyngdalsheiðina yfir til Þingvalla.  Vegurinn var lokaður eða impassible, en við máttum engan tíma missa vegna birtu. Frekar nett að keyra þennan kafla.

Á gamlársdag fórum við( ég, Bessi, Erna og Arnar) í Bláa lónið með honum. Það skal viðurkennt hér, síðast þegar ég fór voru bara skúrar!  Ekki frá því að maður var refreshed á eftir og hárið silkimjúkt eftir blá sjampóið, svo hvíta, svo tvisvar bláa, og svo aftur hvíta-leiðbeiningar sem við fengum. Ég legg hér með til að gamlársdags Bláa lónsferð verði gerð af hefð.

Eftir að hafa séð virkjunina, farið á Geysir og í Bláa lónið, hafði John orð að því það væru nóg af skýjavélum á Íslandi.

Við gerðum margt í höfuðborginni: Kíktum á Óla og Dorrit á Bessastöðum, skoðuðum Háskóla Íslands, tókum Laugaveginn, löbbuðum upp Esjuna o.fl.

Það sem stóð upp úr var áramótabrjálæði okkar Íslendinga og hringtorgin. Á svona litlum tíma, komum við mörgu í verk. Ég hafði mjög gaman af þessu.

Vil nota tækifærið að þakka fjölskyldu minni og vinum fyrir hjálpina!

Nýtt áramótaheiti er að næstu færslur verða ekki svona langar.

Þangað til næst...





Skrifað 3.1.2010 kl. 13:27 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.10.2009

Vinna, vinna, vinna

Þetta var bara ágætis sumar. Veðrið hérna í Seattle hefur aldrei verið eins gott og met voru sett eins og það væri enginn morgundagur. Maður var svo sem ekkert að leika sér, enda alla daga niðri í skóla að vinna í rannsóknaverkefninu með leiðbeinendum mínum.

Kannski réttast maður renni yfir í stuttu máli hvað verkefnið snýst um.

Rannsóknarverkefnið tengist hraðri byggingu brúa (e. rapid construction) og gengur það út á að nota forsteyptar einingar til að byggja brýr. Það sem við viljum er a) meira öryggi b) lágmarka umferðartruflun c) hraða framkvæmdinni og d) meiri gæði.

Þessi hugmynd er svo sem ekki ný á nálinni en hefur verið hafnað á svæðum sem hafa tíða jarðskjálfta, þau ríki eru Kalifornía, Oregon og Washington ríki. Ég kem að verkefninu þegar búið er að rannsaka súlu-bita tengingu, þar sem járnin eru grautuð í þar til gerðum hólkum í bitanum. Þess má geta að það var Íslendingur að vinna í þessum hluta, við erum alls staðar.

Á myndinni fyrir ofan má sjá bita hífðan upp á súlurnar tvær. Járnin ganga upp í bitann og eru þau svo grautuð til að fá bindingu milli eininga.

Það sem ég er að rannsaka er hinn endinn; tenging súlu í fót, hvernig er hægt að gera það þannig það fullnægi þeim kröfum sem við setjum fyrir það.

Kom mörgu í gegn þetta sumar; vann við hönnunina, sótti workshop, nokkur abstract o.s.frv. Í dag erum við að á fullu að byggja súlu-fóts tenginguna í 42% scala af eiginlegri hönnun og munum prófa hana í nóvember. Þegar við höfum sýnt fram á hún virki verður hún notuð í brú sem byggð verður yfir Interstate 5 á næsta ári.

Í næstu viku fer ég á PEER ráðstefnu til San Fransisco með leiðbeinendum mínum, þar sem við kynnum hvað við höfum verið að bralla við.

Þangað til næst.

Skrifað 7.10.2009 kl. 13:58 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

22.7.2009

Ráðstefna

Ég er að fara með leiðbeinendum mínum á ráðstefnu, á morgun. Keypti nýtt bindi í tilefninu, en kann ekki að binda bindishnútt.

Reddaði því með þessu kennslumyndbandi!

http://www.youtube.com/watch?v=sfv782Ix8zI&eurl=http%3A%2F%2Fwww%2Etie%2Da%2Dtie%2Enet%2Fwindsor%2Ehtml&feature=player_embedded

Góðar stundir

Skrifað 22.7.2009 kl. 12:26 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.5.2009

Ótitlað!

Skrifað 2.5.2009 kl. 15:46 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.3.2009

Vorfríið!

Það er heldur betur kominn tími til maður uppfæri bloggið.

Vetrarfjórðungur endaði akkurat fyrir viku síðan og við tók vorfríið eða það sem kaninn kallar spríngbreik. Ég fór í ferðalag til Kaliforníu með þremur vinum mínum úr deildinni (Viktor frá Noregi, Shawn frá Taívan og Fumi frá Japan) og flugum við laugardagsmorgun til San Fransisco.

Þegar við komum út af lestarstöðunni í miðbænum efuðumst við hvort við höfðum valið réttan stað. Það var nefnilega kaldara en heima í Seattle! En það rættist fljótlega úr því. Við gistum við Union Square. Það var brallað margt; við tókum cable car, röltum á pier 39, fórum í ferjum um flóann, keyrðum niður Lombard Street, skoðuðum kafbát, kíktum á University of California-Berkeley Campus og margt fleira.

Hérna höfum við cable car. Þetta verða allir að prófa sem koma til San Fransisco.

Bryggja 39. Ekki Kaliforníulegt á að líta...ein kona bara í dúnúlpu.

 

Lombard street. Þessi mynd er fengin að láni.

Eftir að við keyrðum niður Lombard þá var stefnan sett á Santa Cruz þar sem Viktor á ættingja, þau Vivian og Bob. Frænka hans er dönsk og kom í ljós að ég kann lítið sem ekkert í dönsku. Dvölin hjá þeim var mjög skemmtileg. Við borðum góðan mat og þau gerðu sitt besta við að sýna okkur Santa Cruz. Við skoðuðum University of California-Santa Cruz campus, röltum um miðbæinn, fórum á ströndina og fólk var surfa eins og það væri enginn morgundagur, löbbuðum um Redwood skóg og margt fleira.


Ferðafélagarnir í Redwood. Frá vinstri er Shawn, Fumi, ég og Viktor. Takið eftir derhúfunum á strákunum. Þeir sögðu mér og viktori að þetta væri standard túristabúnaður í Asíu.

Við komum svo aðfararnótt fimmtudags heim til Seattle.

Ég ákvað svo að keyra í morgun til Portlands í Oregon ríki. Það er um þriggja tíma akstur frá Seattle. Borgin var frekar nett, lítil í samanburði við Seattle.

Á mánudaginn byrjar svo vorfjórðungurinn. Það verður mikið að gera, núna verð ég einnig að vinna í rannsóknarverkefninu mínu.

Ég bið að heilsa.



Skrifað 28.3.2009 kl. 21:08 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 8306
Samtals gestir: 3618
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 09:17:19