Blogg

6.10.2008

Hitt og þetta

Hæ, hæ öllsömul!

Bara láta vita að ég er enn á lífi. Ég er semsagt búinn að vera í skólanum í tæpar tvær vikur og  lítur þetta allt mjög vel út. Það er búið að vera mikið að gera, strax frá fyrsta degi.  Bekkurinn var ekki lengi að hristast saman og það er eins og allir hafi þekkst áður.

Strax og fyrstu heimadæmin voru kláruð fórum við nokkrir strákar í IMA, sem er íþróttahús hérna við háskólann. Engin kynding...en búningsherbergi karla er stærra en tækjasalurinn í Laugum! That´s how big it is!

Núna síðasta föstudag fór ég með vinnuhópnum mínum í Down town Seattle og þaðan fórum við Bellevue (sem er nokkurs konar Hafnafjörður Seattle). Þar fórum við á frekar nettan skemmtistað. Þar var dansað og einnig spilað billjard. Þetta kvöld var frekar skemmtilegt og ætlum við að fara einhvern tímann aftur, ef námið gefur færi til.


Frá vinstri er Fumi frá Japan, Viktor frá Noregi, Vin frá Seattle, ég og Shawn frá Taívan

Það er eins og Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna hafi ákveðið að taka sér frí eitt kvöld.

Stefnan er að fara á næstunni á Huskie leik, fótboltalið skólans, með nokkrum strákum í bekknum mínum.

Yfir í hversdagsleikann

Um daginn var ég að festa kaup á ACI Code sem er reglugerð Bandaríkjanna um steypu. Þegar kappinn rétti manninum 70 dollara, þá sagði kauði. Nei hei! Þú getur bara borgað með ávísun! Ég hugsaði....Rollex! er þetta Ísland fyrir 15 árum síðan eða? Jæja, hvað um það. Sá fram á ferð í US Bank til að fá ávísunarhefti en svo þegar ég kom heim var pakki með fjórum heftum kominn í pósti. Hefði verið gott að afi hefði kennt mér að fylla út slíkt áður en ég yfirgaf Ísland. Þetta gekk á endanum...en er samt ekki ennþá búinn að fá bókina.

Er farinn að átta mig á að "how´s it going?" er frekar bara hæ heldur en raunveruleg spurning hehe.

Nýtti mér hrun Íslensku krónunnar rétt áðan og keypti flug frá New York til Íslands, frá 15. desember til 2. janúar. Þetta kom þægilega á óvart, miðinn hafði lækkað verulega síðan í gær.


Þangað til næst....

Skrifað 6.10.2008 kl. 22:14 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 8338
Samtals gestir: 3635
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 09:33:17