Blogg

7.1.2009

Þetta daglega...

Kíkti áðan hvað var í sjónvarpinu. Það var ekki Survivor heldur...



Hér er linkur fyrir áhugasama: http://www.cmt.com/shows/dyn/my-big-redneck-wedding/series.jhtml

Koma svo Skjár einn...

Skrifað 7.1.2009 kl. 18:57 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.1.2009

Kominn til Seattle

Þá er maður kominn aftur til Seattle. Skólinn byrjar á morgun, þannig alvaran byrjar. Ferðin gekk rosalega vel. Mér var skipað í sæti í röðinni fyrir framan Economy Class og fékk því fulla þjónustu. Það má segja að flugfélagið hafi verið að bæta mér upp tvö síðustu skipti. Það var nefnilega ekki hægt að halla sætunum aftur, sem er glatað!

Bara smá komment um leigubílana á JFK. Þeir hafa engan áhuga á þér ef ferðin er undir 15 dollurum! Tók því AirTrain á flugvellinum þangað sem hótelin senda langferðabíla til að taka upp hótelgesti. Þar stjórnaði einn maður kröftuglega og æpti:

"Women and children first!"

Svo kom smá pása og svo var þetta útskýrt frekar...

"It is just like the Titanic"

Á endanum komst ég upp á Ramada hótelið. Það sem er svoldið töff við þessi hótel kringum flugvöllinn er að þau skila þér upp á völl, hvaða Terminal sem er.

Tók svo flug frá New York til Seattle og var það frekar langt. Sessunautar mínir voru báðir að koma langt frá. Önnur var í Grikklandi og hin í Vestur-Afríku. Sú seinni var í þrjár vikur og sú fyrri spurði hvort tíminn hafði verið fljótur að líða. Hún svaraði með tón: "It actually felt like three weeks."  Þannig var leiðinlegt eða? 

Indriði var svo vænn að sækja mig á Seatac flugvöll og þakka ég honum mikið fyrir það.

Byrjaði að snjóa hérna áðan. Fólk virðist vera sjá snjó fyrsta skipti, rennur upp á alla kanta. Meira ástandið.

Heyrumst.

Skrifað 5.1.2009 kl. 14:39 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.1.2009

Út á ný

Jæja, lítur út fyrir að jólafríinu sé lokið. Hér sit ég við hlið 32 og bíð eftir merki um það megi ganga um borð. Allt Svíar í kringum mig.

Það er ekki hægt að segja annað en síðustu dagar hafa verið góðir og ljúfir. Alltaf gott að koma heim og hitta ættingja og vini. Maður er búinn að fara í matarboð, klára sjá allt sem var í boði í bíó með strákunum, fara í jólasveinaferðina og margt fleira skemmtilegt.

Ég haldandi á stjörnuljósi með Birnu og Einari.

Fríið endaði svo með látum og það lá við að ég, Hemmi og Amma vorum meisuð af öryggisverði í Leifstöð.

Það var fyrir að fara frá bílnum í 3 mínútna stæði.

GAS, GAS, GAS!

Takk kærlega fyrir mig og heyrumst síðar.

Skrifað 2.1.2009 kl. 16:24 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 12
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 8315
Samtals gestir: 3625
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 23:19:59