Blogg
28.3.2009
Vorfríið!
Það er heldur betur kominn tími til maður uppfæri bloggið.
Vetrarfjórðungur endaði akkurat fyrir viku síðan og við tók vorfríið eða það sem kaninn kallar spríngbreik. Ég fór í ferðalag til Kaliforníu með þremur vinum mínum úr deildinni (Viktor frá Noregi, Shawn frá Taívan og Fumi frá Japan) og flugum við laugardagsmorgun til San Fransisco.
Þegar við komum út af lestarstöðunni í miðbænum efuðumst við hvort við höfðum valið réttan stað. Það var nefnilega kaldara en heima í Seattle! En það rættist fljótlega úr því. Við gistum við Union Square. Það var brallað margt; við tókum cable car, röltum á pier 39, fórum í ferjum um flóann, keyrðum niður Lombard Street, skoðuðum kafbát, kíktum á University of California-Berkeley Campus og margt fleira.
Hérna höfum við cable car. Þetta verða allir að prófa sem koma til San Fransisco.
Bryggja 39. Ekki Kaliforníulegt á að líta...ein kona bara í dúnúlpu.
Lombard street. Þessi mynd er fengin að láni.
Eftir að við keyrðum niður Lombard þá var stefnan sett á Santa Cruz þar sem Viktor á ættingja, þau Vivian og Bob. Frænka hans er dönsk og kom í ljós að ég kann lítið sem ekkert í dönsku. Dvölin hjá þeim var mjög skemmtileg. Við borðum góðan mat og þau gerðu sitt besta við að sýna okkur Santa Cruz. Við skoðuðum University of California-Santa Cruz campus, röltum um miðbæinn, fórum á ströndina og fólk var surfa eins og það væri enginn morgundagur, löbbuðum um Redwood skóg og margt fleira.
Ferðafélagarnir í Redwood. Frá vinstri er Shawn, Fumi, ég og Viktor. Takið eftir derhúfunum á strákunum. Þeir sögðu mér og viktori að þetta væri standard túristabúnaður í Asíu.
Við komum svo aðfararnótt fimmtudags heim til Seattle.
Ég ákvað svo að keyra í morgun til Portlands í Oregon ríki. Það er um þriggja tíma akstur frá Seattle. Borgin var frekar nett, lítil í samanburði við Seattle.
Á mánudaginn byrjar svo vorfjórðungurinn. Það verður mikið að gera, núna verð ég einnig að vinna í rannsóknarverkefninu mínu.
Ég bið að heilsa.

