Blogg

7.1.2010

You´re late!

Jólin kláruðust í gær, síðasti Ólasveinninn fór frá byggðum.

Ferðin til baka gekk bara mjög vel. Mætti þremur klukkustundum fyrir brottför, eins og mælt er með fyrir flug til Bandaríkjanna. Það veitti ekki af, þar sem leitað var almennilega á farþegum. Í byrjun, þegar þú kemur inn í Leifstöð, er leit light en þegar þú ferð í gegnum vegabréfaskoðun á vellinum, þá er allt tekið upp og skoðað.

Ég var ekki ánægður með netið í Leifstöð. Maður er að borga fyrir net sem virkaði ekki. Aðrir voru í sömu vandræðum. Hvað var til ráða? Nú að fara bara versla. Meðal þess sem ég verslaði silica mud mask frá Bláa Lónsbúðinni. Var frekar ánægður með þetta. Nú er spurningin hverjum ég á að gefa þetta.

Lenti á spjalli við prófessor frá Copenhagen Business School um ástandið á Íslandi. Hann tilheyrir ekki þeim hópi Dana sem er einfaldlega illa við Íslendinga. Við vorum sammála að þetta muni reddast.

Flugið var gott en langt, sjö og hálfur tími. Þegar á miðja leið var komið bankaði flugfreyja í öxlina á mér og rétti mér rauðvínsflösku-"Þetta er í boði Ernu og Steinunnar". Daginn áður höfðu Erna og Steinunn frænka hennar spurt mig hvort ég vildi vín á leiðinni til baka, ég hélt nú það...án þess að ég héldi það væri eitthver alvara bakvið það.  Það smakkaðist vel.

Þessi mynd er tekin þegar vélin var nýbúin að klifra.

Hérna vorum við að fara yfir Cascade fjallagarðinn. Hann gengur frá Bresku Columbia niður til Norður Kaliforníu. Seattle er hinum meginn við fjallgarðinn.

Fyrsta sem landamæravörðurinn sagði við mig þegar ég sýndi honum pappírana mína: "You´re late! School started two days ago!" Það gekk vel að koma kjötinu í gegn, nenntu ekki einu sinni að skoða það þegar þeir heyrðu það væri frá Íslandi.

Prófessorshjónin í húsinu við hliðin á mér buðu mér í kvöldmat og vildu heyra frá ferðinni til Íslands. Næst var að spjalla við Colleen og hún sagði mér að það hafði verið rólegt á 70th street.

Núna tekur við hversdagsleikinn.

Þangað til næst!

Skrifað 7.1.2010 kl. 1:52 af Ól.H.

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 8341
Samtals gestir: 3637
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 14:16:43