Blogg
11.1.2010
Af þessu daglega.
Maður er búinn að vera hálfslappur eftir að maður kom til baka, og fyrst í dag sem maður er eins og maður á að vera. Í dag tók maður göngutúr í kringum Greenlake og allt krökkt af fólki, eins og venjulega. Þegar maður er búinn að vera á Íslandi þar sem hitastigið var á bilinu -10°C til -15°C, þá finnst manni að það sé komið vor í Washington. Hér er hitastigið um 7-8 gráðurnar og enn líf í gróðrinum í kringum mann.
Af heimilinu er helst í fréttum, í dag tók ég mig til og ætlaði að gera við takkann sem sturtar...Anyhow, lokið datt niður og það kom sprunga á kassann.
...klósettið andaðist.
Skrapp í Home Depot (Húsasmiðju BNA) til að kaupa nýtt og reyndi hafa það eins norður-evrópskt og hægt var. Eina skilyrðið frá Colleen er að það væri hvítt. Það gekk vel að skipta um þetta.
Það eru til tvær týpur af mönnum: Þeir sem skoða leiðbeiningar áður en þeir framkvæma og þeir sem gera það ekki, en enda svo á að gera það.
Ég tilheyri seinni.
Akademíska lífinu fyrir þessa viku liggur fyrir að undirbúa fyrstu súluna fyrir prófun. Það mun taka smá tíma þar sem ég hef ekki gert þetta áður. Annað sem þarf að gera, er að vinna í greininni sem ég er meðhöfundur af. Hún fer á ráðstefnu í jarðskjálftaverkfræði, í Japan. Marc mun síðan fylgja henni eftir og kynna hana fyrir hönd hópsins.
Þangað til næst.
