Blogg
17.1.2010
Vikan
Þá er fyrsta heila vikan að baki og maður búinn að aðlagast tímamismuninum.
Síðustu dagar hafa verið frekar vætusamir svo ég hef notað regnhlífina mikið, en samkvæmt innfæddum Seattle-búum er þetta týpískur janúar...og reyndar fram í mars. Í fyrra var veturinn frekar þurr.
Anyhow, mér fannst þetta nokkuð gott...
Hurðin að skrifstofunni minni skelltist fast á fimmtudag (þann dag rigndi mikið). Ég athugaði málið og sá þennan miða hjá skrifborði Jane (hún er doktorsnemi) og var þessi miði til nemenda hennar, í námskeiði sem hún kennir. Á þessu blaði kom fram að hún gæti ekki tekið á móti nemendum síðdegis. Svo virðist sem einn nemandinn hafi ekki tekið þessu vel og skrifaði sín eigin skilaboð!
"I walked here in the rain. Thanks!"
Nú er EM í handbolta að hefjast og ekki frá því það sé kominn spenningur í kappann. Verst að leikirnir eru svo seint síðdegis að ég er í skólanum þegar þeir eru. Ég get hlustað á leikina en það er bara ekkert eins!
Þetta mót er talsvert skemmtilegra en HM því hérna eru öll liðin góð. Eitthvað segir mér að Þjóðverjar nái alla leið í úrslit og erfitt að segja til um andstæðinginn-mér finnst það vera frekar opið. Miðað við árangur Íslenska landsliðsins, eða "strákanna okkar", í leikjum undanfarna daga (sem voru reyndar æfingaleikir), þá getum við verið hæfilega bjartsýn á gott gengi.
Hef þetta ekki lengra að sinni.
