Blogg
24.1.2010
Nýju skórnir
Uppgötvun vikunnar er að nýju skórnir þola illa rigninguna í Seattle. Ætli maður þurfi ekki bara að kaupa stígvél...maður gekk ekki í neinu öðru þegar maður var krakki :-)
Kvenfólk hérna, ólíkt kynsystrum sínum á Íslandi, spáir ekki í tískunni þegar það rignir og tekur fram svörtu stígvélin.
Ánægja vikunnar er klárlega sigur okkar á Dönum. Það var frekar ljúft að landa góðum sigri (hvað þá á erkifjendunum) eftir vonbrigði síðustu tveggja leikja á undan. Það var bara grátlegt að sjá þá missa sigurinn úr höndum sér.
Eyðilagði daganna fyrir mér.
Ameríkanarnir hafa verið svoldið forvitnir um handboltann. Þeir héldu að vísu að þetta væri annars konar íþrótt sem mér skillst að sé svipuð skvassi, en þú notar hendurnar sem spaða. Mér hefur tekist að rífa þá með svo stuðningsmenn Íslands í UW eru fleiri. Ég brosti bara út að eyrum í deildargrillinu í gær (framhaldsnemendur sem eru að stunda rannsóknir og prófessorarnir).
Það gengur vel að undirbúa tilraunina og settur dagur er 2. febrúar. Verðum sennilega tilbúnir fyrr en báðir prófessorarnir mínir eru í burtu og þeir vilja vera viðstaddir. Annar þeirra, Marc, er að fara til Haítí til að vinna. Það er nefnilega margt sem við getum lært eftir jarðskjálfta.
Jæja, best að halda áfram að taka til...
Þangað til næst.

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 17
Gestir í gær: 10
Samtals flettingar: 8323
Samtals gestir: 3628
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 06:43:46