Blogg
2.2.2010
Test og fleira
Þessa dagana hefur maður verið að reyna undirbúa fyrstu tilraunina. Þetta hefur gengið brösulega, svo ekki sé meira sagt. Þetta er fyrsti sökkulfóturinn sem getur rokkað ef álagið er of mikið í tækinu, sum sé mörgu að hyggja.
Ekki það að ég sé að spila Blame Game hérna...
Þannig, þetta gengur hægar en við áttum von á og settur dagur er núna næsta þriðjudag. Ég hef gott fólk með mér í labbinu og það má segja liðið sé mjög alþjóðlegt: Bandaríkjamaður, Breti, Íslendingur, Ítali og Víetnami.
Mér finnst þetta svo einstakt og er þakklátur fyrir tækifærið að fá að búa í svona fjölmenningarsamfélagi, sem Bandaríkin eru. Maður lærir mikið.
Af öðru er helst að frétta að Íslendingafélagið hérna heldur Þorrablót í lok mánaðarins. Það kom inn um lúguna tilkynning um það. Greinilegt að ég á að endurtaka ásadansinn og að syngja íslensku lögin með öðrum sem geta sungið á íslensku.
Lærði dýrmæta reynslu í fyrra: Dansa ekki við stelpu sem kann að dansa...sprinklerinn og kasta teningingum koma þér ekki langt.
Annars, keypti ég miða á fermingarfylleríið um páskana og kemur kappinn eldsnemma heim 28. mars og tilbúinn í fyrstu ferminguna.
Gott fólk, þangað til næst.

